Forsíða
  Kátir dagar 2010  
  Um Langanesbyggð  
  Stjórnsýsla  
  Fréttabréf  
  Stofnanir  
  Atvinnulíf og þjónusta  
  Almannavarnir  
   - Almannavarnir  
   - Slökkvilið  
   - Lögreglan  
   - Björgunarsveitin Hafliði  
  Áhugaverðar síður  
  Ljósmyndasafn  
  Póstþjónn  
  Um vefinn  
  Gestabók  
  English  
 

 

Umsóknir og eyðublöð

 
     
 

Umsókn um afslátt faste.sk.
Umsókn um niðurrif mannv.
Umsókn um stöðuleyfi
Umsókn um byggingarleyfi
Umsókn um lóð
Umsókn um leikskólapláss
Ferða- og dvalarkostnað
Atvinnuumsókn
Húsaleigubætur
Flutningstilkynning innanlands
Flutningur til útlanda
Skráning í sambúð í þjóðskrá

 
 

 

Auglýsingar

 
     
 

 Eyrin til sölu
 UMFL 
 Slökkvilið Langanesb.
 Björgunarveitin Hafliði
 Langnesinga saga

 
 





Björgunarsveitin Hafliði


112

Hafliði Langanesbyggð 

Björgunarsveitin Hafliði
Fjarðarvegi 6
680 Langanesbyggð
468-1313
894-2608

Landsbjörg




Sjómannadagshappdrætti björgunarsveitanna Hafliða og Arnar

Á fimmtudag og föstudag verður gengið í hús á Bakkafirði og Þórshöfn með happdrættismiða til sölu. Það eru björgunarsveitirnar Hafliði á Þórshöfn og Örn á Bakkafirði sem standa fyrir happdrættinu.
Einnig verða miðar til sölu í Samkaupum á föstudag frá kl.16 til 18 og í kaffinu á laugardag.
Einn miði kostar 1.200 kr en fimm miðar 5.000 kr. Veglegir vinningar eru í boði og eru þeir allir kostaðir af fyrirtækjum og öll innkoma því af sölu miðanna skilar sér beint til björgunarsveitanna.


Frétt frá Bjsv Hafliða

Aðalfundur félagsins var haldinn 18 mai síðastliðinn. Starfsemin árið 2008 var svipuð og undanfarin ár. Félagið er skuldlaust sem er lykilatriði fyrir reksturinn á þeim erfiðu tímum sem eru á Íslandi í dag og allt lánsfé mjög dýrt. Hafliði stendur fyrir mörgum atburðum og verkefnum ár hvert  sem er hluti af fjármögnun á rekstri og samfélagslegri þátttöku félagsins. Ekki voru neinar stórar fjárfestingar á árinu. Helstu kostnaðarliðir  voru almennur rekstrar og viðhaldskostnaður. Keyptar voru 3 nýjar hand tetratalstöðvar sem þýðir að við eigum orðið 6 slíkar og einnig keyptum við ný Gps göngutæki.


nánar

Þyrluæfing

Þyrla Landhelgisgæslunar kom til Þórshafnar 16 apríl 2009 í tengslum við flugslysaæfingu sem haldinn á á Þórshafnarflugvelli.

Þyrlan stoppaði yfir nótt og tók eldsneyti sem Bjsv Hafliði sér um fyrir lanshelgisgæsluna á Þórshafnarflugvelli.
Tekinn var stutt æfing með aðilum úr Bjsv Hafliða.M
Myndir frá æfingunni.

Grein :Siggeir S




Nytjamarkaður í Hafliðabúð

Laugardaginn nk verður haldinn nytjamarkaður í Hafliðabúð þar sem til sölu verður fatnaður, skrautmunir, skartgripir, skótau, búsáhöld og bara allt milli himins og jarðar...nema þá helst húsgögn.
Á morgun, föstudag, ætlum við að taka við vörum frá kl. 16-20 í Hafliðabúð og gera allt klárt fyrir markaðinn sem mun standa yfir frá kl.10-18 á laugardaginn. Endilega kíkið í geymslur og uppá háaloft og finnið eitthvað af ofantöldu til að leggja söfnuninni lið með,því allur ágóði rennur óskiptur til Kristínar Svölu, sem nýlega gekkst undir hjartaaðgerð í Boston. Margt smátt gerir eitt stórt og flestir eru aflögufærir með eitthvað sem aðrir geta svo nýtt sér.
Sjáumst hress
Saumaklúbburinn Gleðikonur og aðrir velunnarar!;)



112 dagurinn

11.2. 2009

Haldið var upp á 112 daginn á Þórshöfn, farið var í alla grunnskólana, í Langanesbyggð og Svalbarðshreppi.

Í Grunnskóla Þórshafnar var rýming framkvæmd samkvæmt áætlun grunnskólans og þaðan var farið í íþróttahús sem sýndur var búnaður og fengu menn að prufa ýmislegt.

Vinsælt var að skoða bílaflotann, þáttakan var mjög góð yfir 100 manns mættu á staðinn

Myndir og Grein frá Brunavörnum Langanesbyggðar




Fyrsti fundur ársins 2009

Við sig æfingarFyrsti fundur ársins í unglingadeild Björgunarsveitarinnar Hafliða verður haldinn miðvikudagskvöldið 21. janúar kl. 19:30 í Hafliðabúð. Stefnt er á fundir í unglingadeildinni verði haldinn annan miðvikudag hvers mánaðar í vetur. Krakkar fæddir ´91 - ´95 eru velkomin. Kenndur verður kortalestur og að nota gps-tæki, áttavita og skyndihjálp. Sýndur verður sigbúnaður, bátar og önnur tæki og stefnt að því að fara í ferðir. Athugið að þetta er bæði fyrir stelpur og stráka.

Aldur þeirra sem starfa í unglingadeildum björgunarsveita er almennt 14 til 18 ára.

Þórarinn Þórisson ætlar að vera umsjónarmaður unglingadeildar en fleiri aðilar koma að ýmsum námskeiðum og öðrum þáttum.

Foreldrar eru velkomnir á fundinn.

Innan unglingadeilda Slysavarnafélagsins Landsbjargar hefur mikill fjöldi unglinga fundið athafnaþrá sinni farveg til heilbrigðra, spennandi og uppbyggilegra starfa. Unglingadeildir Slysavarnafélagsins Landsbjargar eiga sér langa sögu og hafa unglingadeildir gefið af sér sterka einstaklinga sem eru góð endurnýjun fyrir björgunarsveitir landsins, en einnig er starf í unglingadeildum gott veganesti út í lífið.

Mynd :Við sigæfingar                      




Dagskrá Björgunarsveitarinnar um jólin

Móttaka jólakorta er í Hafliðabúð milli kl. 16.00 og 18.00 á Þorláksmessu.

Jólatrésskemmtun verður í miðbænum og byrjar hún kl. 19.30. Boðið verður upp á kakó og meðlæti í versluninni í boði verkalýðsfélag Þórshafnar, Samkaupa og Hafliða. Jólasveinar munu að öllum líkindum mæta og það verður sungið og gengið í kringum jólatréð.

Flugeldasala verður í Hafliðabúð á eftirfarandi dögum:

Mánudaginn                 29. desember kl. 17.00 til 19.00

Þriðjudaginn                30. desember kl. 16.00 til 21.00

Miðvikudaginn 31. desember kl. 11.00 til 15.00

Áramótabrennan byrjar kl. 20.30 og verður á Hjallamel við Syðra-Lón

Flugeldasýningin verður kl. 21.30 við grindarhlið á Fjarðarvegi og mun sjást best frá hafnarsvæðinu.




Unglingadeild Bjsv. Hafliða.

Boðað er til fundar í unglingadeild Bjsv. Hafliða í kvöld, 26 nóvember, klukkan 20.00 í Hafliðabúð. Rætt verður um starfsemina í vetur en stefnt er á að reglulegir fundir verði í unglingadeildinni.

 

Aldur þeirra sem starfa í unglingadeildum björgunarsveita er almennt 14 til 18 ára.

 

Þórarinn Þórisson ætlar að vera umsjónarmaður unglingadeildar og eins munu fleiri aðilar koma að ýmsum námskeiðum og fleiru.

 

Á fundinum í kvöld verður tekið fyrir hvernig starfinu verður háttað í samráði við unglinganna.

 

Foreldrar eru velkomnir að mæta á fundinn í kvöld.

 

Innan unglingadeilda Slysavarnafélagsins Landsbjargar hefur mikill fjöldi unglinga fundið athafnaþrá sinni farveg til heilbrigðra, spennandi og uppbyggilegra starfa. Unglingadeildir Slysavarnafélagsins Landsbjargar eiga sér langa sögu og hafa unglingadeildir gefið af sér sterka einstaklinga sem eru góð endurnýjun fyrir björgunarsveitir landsins, en einnig er starf í unglingadeildum gott veganesti út í lífið.

 

 

F.h. Björgunarsveit Hafliða.

Þórarinn Þórisson

Siggeir Stefánsson

Nóvember 2008




Bréf frá formanni Slysavarnafélagsins Landsbjargar

17 okt 2008
Meðal efnis:

Bréf frá formanni SL
Um Björgun 2008
Gisting á Björgun 2008
Æskulýðssjóður menntamálaráðuneytisins
Námskeið í sporrakningum
Nýr kostur í bílamálum

..................................................................

Ágæta björgunar- og slysavarnafólk.

Þar sem efnahagsmál íslensku þjóðarinnar hafa nú færst til verri vegar, þá vil ég upplýsa ykkur um að stjórn Slysavarnarfélagsins Landsbjargar stendur nú útkallsvaktina og undirbýr félagið sem best til að mæta þeim efnahagslegu þrengingum sem ganga nú yfir íslenskt samfélag. Stjórn félagsins vinnur að þessu máli í nánu samstarfi við framkvæmdastjóra félagsins og aðra starfsmenn þess. Um þessar mundir er unnið að ráðagerð innan félagsins um aðhald í rekstri og öðrum viðbrögðum sem tryggja hagsmuni þess og eininga þess sem best. Af þessum sökum má búast við einhverjum breytingum á starfsháttum og áherslum sem unnið hefur verið eftir.


nánar

Aðalfundur Björgunarsveitarinnar Hafliða

Björgunarsveitin Hafliði.


Aðalfundur Björgunarsveitarinnar Hafliða verður haldinn sunnudaginn 06. júlí n.k. kl. 20,00. í Hafliðabúð.

Hvetjum félagsmenn til að mæta.
Venjuleg aðalfundarstörf.

Stjórnin.




Vinningshafar í sjómannadagshappdrætti björgunarsveitanna 2008

Vinningshafar í sjómannadagshappdrætti björgunarsveitanna

Hafliða á Þórshöfn og Arnar á Bakkafirði

1.  GPS eTrex Venture Cx með Íslandskorti að verðmæti 30.000 kr. frá Sparisjóði Þórshafnar og nágrennis

Nr. 31 - Ólafur Steinn Ólafsson, Þórshöfn


nánar

Fréttabréf Hafliða

Fréttabréf-

Bj.sv. Hafliði

31 mai 2008 

2 tbl. 7 árg.

Ábm. Siggeir Stefánsson

Sjómannadagur.

Björgunarsveitin Hafliði mun vera með eggjaveislu, skemmtidagskrá á höfninni, kaffi, happadrætti og tækjasýningu á Þórshöfn laugardaginn 31. mai 2008 í tilefni af  sjómannadegi.

Hvetjum alla til að mæta og taka þátt í skemmtilegum degi.

Eggjaveisla verður á Eyrinni þar sem boðið verður upp á ókeypis egg. Eyrin verður með girnilega súpu á boðstólum.

Skemmtilegir leikir og þrautir verða á hafnarsvæðinu þar á meðal keppni um sterkasta mann og konu Þórshafnar.

Selt verður  kaffi og með því í Hafliðabúð kl. 15.00 til styrktar sveitinni.    


nánar

Dagskrá Sjómannadagsins á Þórshöfn

Björgunarsveitin Hafliði býður uppá dagskrá sem er eftirfarandi.


Laugardaginn 31. maí 2008.

  • 09.00           Allir draga íslenska fánann að húni.
  • 12.00           Eggjaveisla á Eyrinni, ókeypis egg.
  • 13.00           Útileikir á hafnarsvæði, 
  • 15.00           Tækjasýning Hafliða og slökkviliðs byrjar í Hafliðabúð.
  • 15.00           Kaffi og kökur í Hafliðabúð.     Verð: fullorðnir = 1.000,- Krakkar 6-12 ára og ellilífeyrisþegar = 500,-. Yngri frítt.
  • 15.30           Guðsþjónusta í Hafliðabúð. Lifandi harmoniku tónlist verður á staðnum.
  • 16.30           Dregið í Happadrætti þar sem margir og góðir vinningar eru í boði.
  • 17.00           Boðið upp á ferðir með björgunarbátnum og nýja björgunarbílnum.


Sunnudagur 1. júní

  • 1. júní 2008 kl. 14.00 verður sparkvöllur vígður

Fréttabréf Hafliða (Nýtt)




Fjalklamennskunámskeið

Það verður haldið fjallamennska 1 námskeið á Húsavík um helgina 18-20/4 2008 það þarf að skrá sig fyrir kl. 15:00 á morgun fimmtudag 17/4. Hægt er að skrá sig á www.landsbjorg.is og í síma5705900

Með kveðju

Brynjar Ásmundsson
Björgunarsvið /SAR Department
Slysavarnarfélagið Landsbjörg/ ICE-SAR

Sími 5705900




Fréttabréf Slysavarnarfélags Landsbjargar

Meðal efnis:
Útivistarskóli SL

Tetra stöðvar
Bráðadagur
Bók um snjóflóðaleit
Númi - borðspil
Ráðstefna um fjarskipti
Nýr slysavarnasjóður
Tilboð frá 66°Norður

..................................................................

Útivistarskóli SL- skráning hafin

Skráning í Útivistarskóla Slysavarnafélagsins Landsbjargar er hafin. Sem fyrr fara námskeiðin fram á Gufuskálum og í sumar er boðið upp á fimm grunnnámskeið og eitt framhaldsnámskeið. Aðsókn að Útivistarskólanum hefur verið góð undanfarin ár, fullbókað var á öll námskeið síðasta sumar.

Dagsetning námskeiða:


nánar

Fréttabréf-

Bj.sv. Hafliði

18 febrúar 2008 

1 tbl. 7 árg.

Ábm. Siggeir Stefánsson

Minning: Henrý Már Ásgrímsson f. 23.04.55                 d. 14.09.07

Henrý var virkur félagi í áratugi og sendum við aðstandendum samúðarkveðjur vegna frAðstandendur Henrýs bentu þeim sem vildu minnast hans á Bjsv. Hafliða og safnaðist þar upphæð, sem í samráði við Guðrúnu ekkju Henrýs, var ákveðið að ráðstafa til kaupa á 5 nýjum GPS staðsetningartækjum.  Munu 2 þeirra verða á nýju vélsleðunum og 3 verða tilbúin fyrir leitarflokka, en auk þess verður settur upp þakkarskjöldur í Hafliðabúð.  Við viljum þakka aðstandendum Henrýs fyrir stuðninginn.áfalls hans.


nánar

Hestarnir fundnir

23. janúar 2008
Hestarnir fjórir sem týndust á lokadegi jóla eru fundir eftir víðtæka leit.

6-8. Björgunarsveitarmenn leituðu hestanna á vélsleðum og fundu þá loks upp á Nauttungufjalli á mánudaginn.
Hestarnir voru í góðu ástandi eftir 16 daga á fjöllum og höfðu náð að krafsa sér æti gegnum snjóinn.

Hestunum var svo fylgt til byggða en sú för tók talsverðan tíma, því þeir voru ekki komnir til byggða fyrr en á þriðjudag.

Nýjar myndir frá Ólafi Stefánssyni

Mynd: Hlynur Grétarsson




Staðið í ströngu

17. janúar 2008
Björgunarsveitin hefur staðið í stöngu undanfarna daga þar sem leit af hestum hefur staðið yfir ásamt þvi að bílvelta varð á Brekknaheiði er flutningabíll fór á hliðina. Björgunarsveitafólk affermdi bílinn á staðnum til að hægt verði að rétta bílinn af, sem var gert með kranabíl.


Frá veltunni á Brekknaheiði


.

Einnig fór pallbíll með kerru útaf í Miðfirði og valt en þar slapp ökumaður ómeiddur. Björgunarsveitin veitti aðstoð við að þrífa vettvanginn. 




Leit af hestum

15. janúar 2008
Fjórir hestar frá bænum Hvammi fældust á þrettándanum og flúðu til heiða er flugeldum var skotið upp.

Hefur ekkert til hestanana spurts síðan en Björgunarsveitin Hafliði hefur verið að leita þeirra í heiðunum. 

Þeir sem hafa orðið varir við hesta í lausagöngu endilega látið Björgunarsveitina Hafliða vita.  

468-1313
894-2608
112




Flugeldar fyrir þrettándann

5.janúar 2007
Í tilefni þrettándans verður flugeldasala Björgunarsveitarinnar Hafliða opin á sunnudag

6. janúar frá 17,00 til 19,00

Björgunarsveitin Hafliði




1 2 3 næsta síða

Viðburðadagatal

previous year prev month sep2010 next month next year
 máþrmififölasu
35303112345
366789101112
3713141516171819
3820212223242526
3927282930123

 

Fundargerðir

 
     
 

Fundarg. Langanesb. 2010 
Fundarg. Langanesb. 2009
Fundarg. Langanesb. 2008
Fundarg. Langanesb. 2007
Fundarg. Langsnesb. 2006
Fundarg. Þórshafnarhr.01-06
Fundarg. Skeggjast.hr.03-06

  

 
 

 

Gjaldskrár

 
     
 

Ál.ákvæði fasteignagjalda 2010
Gjaldskrá fyrir Þórsver
Gjaldskrá um geymslusvæði
Álagningarákvæði 2009, úr gildi
Ál. ákvæði gatnagerðar frá 1984
Langaneshafnir
Gatnagerðargjöld 2008
Gjaldskrá grunn- og leikskóla
Hundahald
Sláttur á lóðum
Leiguíbúðir

 
 

 

Góðgerðamál

 
     
  Magnús Sigurðsson
Davalarheimilið Naust
Violetu Kuczynska
Vala Örvarsdóttir
 
 


Langanesbyggð, Fjarðarvegi 3, 680 Þórshöfn Sími 468-1220 Bréfsími 468-1323 Kennitala: 420369-1749
Sveitarstjóri sveitarstjori(hja)langanesbyggd.is