Forsíða
  Kátir dagar 2010  
  Um Langanesbyggð  
  Stjórnsýsla  
  Fréttabréf  
  Stofnanir  
  Atvinnulíf og þjónusta  
  Almannavarnir  
  Áhugaverðar síður  
  Ljósmyndasafn  
  Póstþjónn  
  Um vefinn  
  Gestabók  
  English  
 

 

Umsóknir og eyðublöð

 
     
 

Umsókn um afslátt faste.sk.
Umsókn um niðurrif mannv.
Umsókn um stöðuleyfi
Umsókn um byggingarleyfi
Umsókn um lóð
Umsókn um leikskólapláss
Ferða- og dvalarkostnað
Atvinnuumsókn
Húsaleigubætur
Flutningstilkynning innanlands
Flutningur til útlanda
Skráning í sambúð í þjóðskrá

 
 

 

Auglýsingar

 
     
 

 Eyrin til sölu
 UMFL 
 Slökkvilið Langanesb.
 Björgunarveitin Hafliði
 Langnesinga saga

 
 





Slökkvilið



Tenglar
Brunavarnaáætlun Langanesbyggðar & Svalbarðshrepps


Sími-4681220


Prófaðu þennan eldvarnarleik

Vaktstjóri Bakkafirði
Indriði Þórhallsson
GSM - 895-1686

verkstjori@bakkafjordur.is

Slökkviliðsstjóri
Axel Gunnarsson 
S - 4681142 GSM - 8961142
slokkvilid@langanesbyggd.is

Myndasíða

Í neyð 112




Úttekt á Slökkviliðinu

Fimmtudaginn 28 júní komu í heimsókn þeir Guðmundur Bergsson og Baldur Baldursson sem reka fyrirtækið Eldstoðir ehf.

Hlutverk þeirra er að taka út slökkviliðin í landinu og bjóða jafnframt upp á æfingaraðstöðu í sérstökum gámum ætluðum fyrir reykköfunaræfingar.

Úttektin var með þeim hætti að þeir telja, skoða og skrá allar eigur slökkviliðsins, skoða skrár yfir æfingar, prófanir og eftirlit. Senda síðan skýrsluna til brunamálastofnunar sem síðan mun setja fram kröfur um úrbætur ef þarf.

Eftir úttektina var svo tekin reykköfunaræfing í gámunum.


nánar

Slökkvilið Langanesbyggðar fær Tohatsu dælu

19. júní 2007 

Slökkvilið Langanesbyggðar fékk um daginn Tohatsu VC72AS brunadælu sem afkastar 1.300 l/mín við 8 bar og 3m. soghæð um 6m. barka. Dælan er einstök í sinni röð og þyngd hennar er aðeins 85 kg. Fyrir stuttu fengu  Slökkvilið Grenivíkur og Slökkvilið Borgarbyggðar Tohatsu dælur.

Dælan er búin bæði raf og handstarti. Snúningssogdæla er aðeins 6 sek. að sjúga úr 3ja m. hæð um 6m. langan 4" barka. Dælan er vatnskæld um soghlið og er með sjálfvirka yfirhitavörn.

Úttak er eitt 2 1/2" snúanlegt og með lokum. Inntak er 3 1/2" með 4" Storz tengi. Afköst eru miðað við 3ja m. soghæð eins og áður sagði 1.300 l./mín við 8 bar, 950 l./mín við 10 bar og 1.700 l./mín við 4 bar. Sem sagt geysiöflug dæla. einstaklega auðveld í notkun og í trefjaplasthúsi. Með fylgir ljóskastari.

Þessi dæla var m.a. valin þar sem hún verður geymd í nýrri slökkvibifreið þeirra Langanesbyggðar manna.
Smellið á myndina og fáið frekari upplýsingar um Tohatsu lausar brunadælur.
 




Eldur í Kúfiskveiðiskipinu Fossá ÞH

15.apríl 2007 

Í dag kl 17:00 kom upp eldur í Kúfiskveiðiskipinu Fossá frá Þórshöfn um það leiti sem það kom í höfn með fullfermi. Eldurinn blossaði upp þegar glussaslanga gaf sig og glussi spíttist yfir heita aðalvél skipsins með þeim afleiðingum að upp blossaði eldur.
Vélstjórinn á Fossá brást skjótt við og náði hann að slökkva eldinn. Slökkvilið Langanesbyggðar á Þórshöfn mætti skömmu síðar og tryggði vettvanginn og að eldurinn myndi ekki blossa upp aftur. Vélstjórinn var svo fluttur á heilsugæsluna á Þórhöfn til aðhlynningar vegna gruns um reikeitrun

Skemmdir urðu óverulegar á skipinu og tefst það líklega ekki mikið út af atvikinu.

 




Nýtt slökkviliðsmerki

Slökkvilið Langanesbyggðar er komið með nýtt merki og litur það svona út




Meiri dýpt er í verkfærunum í myndinni frá gömlu myndinni og eru litir settir á skilti sem voru áður samlit merkinu. Eins eru aðrir litir í eldinum í merkinu

.

.

.

.




Bátur brann á Þórshöfn í nótt

18. mars 2007 

Eldur komu upp í fiskibátnum Draupnir ÞH 180 sem er 11,9 rúmlesta furu og eikabátur í höfninni á Þórshöfn um fimmleytið í nótt, mikill eldur var í bátnum og er hann mikið skemmdur, líklega ónýtur. Vel gekk að slökkva eldinn en slökkviliðsmenn voru í um þrjá tíma að störfum við að tryggja að slökknað væri í öllum glæðum. Ekki er vitað um eldupptök en rannsókn á þeim hefst í dag.

Myndir Guðjón Gam.




Æfing hjá Slökkviliðinu

15.mars 2007 

Á mánudaginn 19. mars verður æfing hjá Slökkviliði Langanesbyggðar.

Æfingin hefst kl 17:00 í slökkvistöðinni á Þórshöfn. Þeir sem sjá sér ekki fært að mæta tilkynni það sem fyrst hjá.
Slökkviliðsstjóra s-8934479
olafur@langanesbyggd.is

 




112 dagurinn

14. febrúar 2007 

Haldið var upp 112 daginn á Þórshöfn sem og öðrum stöðum á landinu en markmiðið með 112 deginum er að kynna neyðarnúmerið og starfsemi aðilanna sem tengjast því, efla vitund fólks um mikilvægi þessarar starfsemi og hvernig hún nýtist almenningi.
Markmið dagsins er enn fremur að efla samstöðu og samkennd þeirra sem starfa að forvörnum, björgun og almannavörnum og undirstrika mikilvægi samstarfs þeirra og samhæfingar.

Myndir G. Gam
 




Reykköfunaræfing

10. janúar 2007   

Slökkvilið Langanesbyggðar sem skipað er slökkviliðsmönnum frá Bakkafirði og Þórshöfn var með reykköfunaræfingu á Þórshöfn í gær. Slökkviliðið æfði sig í húsinu að Eyrarvegi 8 á Þórshöfn sem brann þann 25.september síðastliðinn. Húsið er frábær æfingarstaður fyrir reykköfun, stórt með mikið af felustöðum og ranghölum, stigum og fjórum hæðum sem gerir reyköfunina mjög krefjandi. Önnur slökkvilið gætu td. fengið að nýta sér þetta frábæra æfingarhúsnæði meðan það sendur enn.

Slökkviliðsstjóri




Langanesbyggð kaupir slökkvibifreið

8. janúar 2007
    
Í gær var undirritaður samningur við Langanesbyggð um FLF 3000/300 Renault Midlum 16 tonna 4x4 sídrifs slökkvibifreið sem smíðaður verður hjá Wawrzaszek í Póllandi. Bifreiðin er með 280 hestafla vél og Allison 5 gíra sjálfskiptingu. Bifreiðin verður útmúin sem húsabruna og flugvalla slökkvibifreið til að þjóna einnig á flugvellinum á Þórshöfn.



Meira um bílinn
    


nánar

Frá Brunavörnum Langanesbyggðar!

21. desember 2006


Í tilefni hátíðisdaganna sem senn fara í hönd er lag að yfirfara brunavarnir á heimilum okkar, því þar eru jú verðmæti samfélagsins falin, þ.e.a.s. börnin okkar og við sjálf.
Athugum eftirfarandi:
•  Reykskynjarar í lagi (rafhlöður, 10 ára hámarksaldur og prófa 2:ar á ári)
•  Slökkvitæki á áberandi stað sem næst útihurð (Léttv. 9ltr., Duft 6 kg.)
•  Eldvarnarteppi í öll eldhús (skoða árlega)
•  Fara aldrei frá logandi kerti



Óskum ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári
Slökkviliðsstjóri
    


nánar

Námskeið í Revinge

24. október 2006
   
Í þessari viku er námskeið fyrir stjórnendur í gangi í Revinge í Svíþjóð og er 25 manna hópur frá slökkviliðunum víðsvegar af landinu ásamt 6 íslenskum kennurum staddur þar. Þetta námskeið er beint framhald af 3 daga undirbúningsnámskeiði sem haldið var um helgina og hefur það farið vel af stað. Hér má sjá mynd af þessum fríða hópi stilla sér upp fyrir framan myndavélina.

Frá okkur fór slökkvilðsstjórinn Ólafur Stefánsson og lét hann vel af námskeiðinu. Sagði þetta vel undirbúið og aðstæður til æfinga ótrúlegar, m.a. heilt þorp sem mátti brenna.
    
Mynd af hópnum sem fór


nánar

Samæfing á Þórshöfn

18. október 2006
   
Samæfing var haldin í gær á Þórshöfn þar sem aðgerðir Slökkviliðs Þórshafnar og Bakkafjarðar ásamt almannavörnum, lögreglunni, björgunarsveitinni Hafliða og sjúkraflutningamönnum frá Þórshöfn og Raufarhöfn og starfsfólki heilsugæslunnar tókust á við stórslys. Einnig var á staðnum tækjabíll almannavarna sem staðsettur er á Húsavík.


Sprenging var sviðsett í húsi vegagerðarinna á Þórshöfn þar sem að bjarga þurfti hóp fólks sem lent höfðu í sprengingunni. Alls 8 sjúklingar voru á víð og dreif um húsið og eftir að slökkvilið hafði tryggt vettvanginn þá hófust aðgerðir við að bjarga fólkinu sen voru með alls konar áverka. Fólkið var svo flutt á heilsugæsluna þar sem þeim var sinnt betur og forgangsraðað eftir áverkum til flutnings og voru svo sjúklingarnir fluttir út á flugvöll eins og um alvöru sjúkraflug væri að ræða.

Á eftir æfinguna sem tók á þriðja klukkutíma var farið yfir æfingunna í kaffistofu Hraðfrystistöðvar Þórshafnar. Æfingin gekk mjög vel en samt voru fullt af hlutum sem þarf að lagfæra en til þess eru æfingarnar.
    
 


nánar

Slökkvilið Bakkafjarðar með æfingu

10. október 2006

Slökkvilið Bakkafjarðar var með æfingu í gær en þar var farið rækilega yfir slökkvibílinn og búnað hans Því næst var farið í vatnsöflunaræfingu.

Bíllinn var tengdur við brunahana niður við búð og gekk allt eins og smurt þar til skrúfa átti fyrir brunahanann þá kom í ljós að það var ekki hægt. Var þá búinn til neyðarkrani á slönguna þar til hægt verður að laga eða skipta út brunhananum.

myndir


    


nánar

Slökkvistöðin á Bakkafirði 2006

Vaktstjóri

Indriði Þóroddsson
GSM 895 1686,

Netfang : verkstjori@bakkafjordur.is

Í sameinuðu slökkviliði Bakkafjarðar Þórshafnar og Svalbarðshrepps eru 6 slökkviliðsmenn á Bakkafirði ávalt í viðbragðstöðu

Slökkviliðið á Bakkafirði er með lítinn slökkvibíl með öllum grunnbúnaði sem þarf til slökkvistarfs auk reykafarabúnaðs. Slökkvibílar frá nágönnum okkar í norðri 45km og suðri 35km mæta svo til aðstoðar ef bruni kemur upp.
    


nánar

Húsbruni á Þórshöfn

30.apríl 2006

Íbúðarhúsið Bergholt við Langanesveg 17-a á Þórshöfn brann aðfaranótt sunnudagsins 30. apríl og er talið hafa gjöreyðilagst. Enginn var í húsinu, sem má teljast mikil mildi.

 
Eldsins varð fyrst vart laust eftir miðnætti, stuttu fyrir hálf eitt, þegar tveir menn áttu leið eftir Langanesveginum og sáu töluverðan reyk leggja frá húsinu. Annar þeirra er starfandi slökkviliðsmaður á Þórshöfn og þeir fóru þegar að húsinu til að kanna málið. Þegar þeir opnuðu útidyrnar blasti við eldhaf og sprenging varð þegar í stað og gluggarúður hússins splundruðust.
nánar

112. Dagurinn.

22.febrúar 2006

Það var mikið um að vera við íþróttahúsið á Þórshöfn laugardaginn 11. febrúar þegar viðbragðsaðilar neyðarvarna á staðnum héldu upp á 112 daginn. Eins og flestir vita er hann einkum til að kynna starfsemi 112 en aðilar á Þórshöfn tóku nú þátt í þvíí fyrsta sinn.

Strax um morguninn óku bílar með blikkandi ljós gegnum bæinn; það var m.a. slökkvilið, björgunarsveit og lögregla en ungir vegfarendur voru afar hrifnir af þessum farkostum.


nánar

Æfing hjá slökkviliðinu

8. september 2005

Helgina 17.-18. september var haldin slökkviliðsæfing á Þórshöfn. Slökkviliðsmenn frá Stór-Bakkafjarðarsvæðinu ....... þ.e. frá Bakkafirði, Vopnafirði og Þórshöfn voru á æfingunni og voru þar m.a. æfingar með klippur til að ná fólki út úr bílum ásamt rústabjorgun og brunastigaæfingum og ýmsu fleira. Hérna eru myndir sem að

nánar

Bærinn Vegamót brenndur.

29. maí 2005  


 Í gærdag þá var bærinn Vegamót sem er steinsnar innan Þórshafnar brenndur.
Það var slökkvilið Þórshafnar ásamt meðlimum úr slökkviliði Bakkafjarðar og slökkviliði Vopnafjarðar sem stóðu að brennunni.
Húsið að Vegamótum var orðið mjög hættulegt bæði mönnum og skepnum enda að hruni komið.


 

Sjá myndir smellið á mynd
 




Eldsvoði í Bakkafirði

29. Júní 2002  
Lítið einbýlishús skemmdist í eldi í Bakkafirðií nótt. Samkvæmt fréttum RÚV kviknaði eldurinn út frá eldavélahellu sem gleymst hafði að slökkva á.

Slökkvilið Bakkafjarðar og Vopnafjarðar kom á staðinn og lauk slökkvistarfi uppúr klukkan fjögur í nótt.

Engan sakaði í eldsvoðanum.


nánar

til baka 1 2

Viðburðadagatal

previous year prev month sep2010 next month next year
 máþrmififölasu
35303112345
366789101112
3713141516171819
3820212223242526
3927282930123

 

Fundargerðir

 
     
 

Fundarg. Langanesb. 2010 
Fundarg. Langanesb. 2009
Fundarg. Langanesb. 2008
Fundarg. Langanesb. 2007
Fundarg. Langsnesb. 2006
Fundarg. Þórshafnarhr.01-06
Fundarg. Skeggjast.hr.03-06

  

 
 

 

Gjaldskrár

 
     
 

Ál.ákvæði fasteignagjalda 2010
Gjaldskrá fyrir Þórsver
Gjaldskrá um geymslusvæði
Álagningarákvæði 2009, úr gildi
Ál. ákvæði gatnagerðar frá 1984
Langaneshafnir
Gatnagerðargjöld 2008
Gjaldskrá grunn- og leikskóla
Hundahald
Sláttur á lóðum
Leiguíbúðir

 
 

 

Góðgerðamál

 
     
  Magnús Sigurðsson
Davalarheimilið Naust
Violetu Kuczynska
Vala Örvarsdóttir
 
 


Langanesbyggð, Fjarðarvegi 3, 680 Þórshöfn Sími 468-1220 Bréfsími 468-1323 Kennitala: 420369-1749
Sveitarstjóri sveitarstjori(hja)langanesbyggd.is