| Forsíða | ||
| Stjórnsýsla | ||
| Um Langanesbyggð | ||
| Stofnanir | ||
| Atvinnulíf og þjónusta | ||
| Almannavarnir | ||
| Áhugaverðar síður | ||
| Ljósmyndasafn | ||
| Póstþjónn | ||
| Um vefinn | ||
| English | ||
Auglýsingar |
||
Skrifstofustjóri óskast |
||
Stjórnsýsla
Skólaslit Grunnskólans á Þórshöfn
Grunnskólanum á Þórshöfn verður slitið við hátílega athöfn í Þórshafnarkirkju föstudaginn 18. maí klukkan 17:00.
Að loknum skólaslitum opnar ein stórkostlegasta handavinnusýning sem sett hefur verið upp norðan heiða. Á sýningunni, sem er í skólanum, má sjá afrakstur af vinnu nemenda í vetur undir handleiðslu Hrafngerðar Elíasdóttur handmenntakennara. Sýningin stendur til 19:30 og eru nemendur þá beðnir að nálgast muni sína í skólann.
Allir hjartanlega velkomnir.
Vilt þú vinna þér inn aukapening?
Ungmennafélag Langnesinga leitar eftir þjálfara fyrir sumarið. Um er að ræða þjálfara fyrir fótbolta og frjálsar íþróttir. Áhugasamir geta rætt við undirritaða um óskir varðandi aldurshópa, æfingartíma, æfingarskipulag og fleira sem viðkemur æfingum. Ásættanleg laun í boði.
Ef þú sérð þér fært að taka að þér þjálfun í íþróttafélagi í sumar væri gott að heyra frá þér sem fyrst eða fyrir 25. maí. Áhugasamir hafa samband við undirritaða.
Sölvi Steinn Alfreðsson
Sími: 863-5188
Þorsteinn Egilsson
Sími: 847-6992
Innritun 6 ára barna í Grunnskólann á Þórshöfn
Innritun 6 ára barna (fædd 2006) fer fram í Grunnskólanum á Þórshöfn í dag, mánudaginn 14. maí klukkan 15:00 og eru börnin þá boðuð í skólann ásamt foreldrum sínum.
Í vetur hefur grunnskólinn í samvinnu við leikskólann unnið að því að kynna skólastarfið í grunnskólanum fyrir elstu nemendum leikskólans. Markmiðið er að börnin upplifi grunnskólann sem eðlilegt framhald af leikskólanum og að þau kynnist starfsfólki, húsakynnum og skólalóð grunnskólans áður en þau hefja nám við skólann. Skólaaðlögunin hefur m.a. falist í reglulegum heimsóknum barnanna í grunnskólann. Í dag gefst foreldrum svo tækifæri til að skoða skólann ásamt börnum sínum og hitta skólastjóra og kennara.
Skólastjóri
Fundur um öldrunarmál
Opinn fundur um öldrunarmál verður haldinn í Glaðheimum á Þórshöfn miðvikudaginn 16. maí kl. 16:00.
Á fundinum verða m.a. kynntar niðurstöður könnunar sem gerð var meðal 60 ára og eldri íbúa Langanesbyggðar og Svalbarðshrepps á viðhorfi þeirra til hjúkrunar- og dvalarheimilisins Nausts.
Jafnframt verða á fundinum fulltrúar frá Félagsþjónustu Norðurþings og Tryggingastofnunar og kynna þjónustu við aldraða og vistunarumsóknir, ásamt því að taka þátt í umræðum og svara fyrirspurnum.
Allir velkomnir.
Naust og Félag eldri borgara
Skrifstofustjóri óskast
Langanesbyggð auglýsir eftir umsóknum um stöðu skrifstofustjóra á skrifstofu sveitarfélagsins á Þórshöfn.
Leitað er að metnaðarfullum, hugmyndaríkum og kraftmiklum einstaklingi til að takast á við ögrandi og spennandi verkefni.
Hlutverk skrifstofustjóra Langanesbyggðar:
- Umsjón með fjármálum sveitarfélagsins.
- Gerð fjárhags- og rekstraráætlana, ásamt sveitarstjóra
- Umsjón með kostnaðareftirliti og uppgjörum.
- Umsjón með og daglegur rekstur skrifstofuhalds sveitarskrifstofu á Þórshöfn.
- Annast útgáfu á vegum sveitarfélagsins, s.s. tilkynningum, dreifibréfum og heimasíðu.
- Annast undirbúning funda sveitarstjórnar í samráði við sveitarstjóra og oddvita sveitarstjórnar, auk frágang og útsendingu fundargerða nefnda sveitarfélagsins.
- Ritari sveitarstjórnar.
- Staðgengill sveitarstjóra
- Önnur verkefni sem skrifstofustjóra eru falin.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Menntun á sviði viðskipta eða rekstrar æskileg.
- Góð bókhaldsþekking skilyrði (Navision).
- Reynsla af rekstri sveitarfélaga eða fyrirtækja er kostur.
- Gott vald á íslensku í töluðu og rituðu máli.
- Sjálfstæð vinnubrögð, talnaskilningur og rökfesta.
Nánari upplýsingar veitir:
Gunnólfur Lárusson, sveitarstjóri
S: 468 1220 og 821 1646 - sveitarstjori@langanesbyggd.is
Umsóknarfrestur er til og með 1. júní 2012 en æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Auglýsing um tillögu að Aðalskipulagi Langanesbyggðar 2007-2027 - Endurauglýsing
Sveitarstjórn Langanesbyggðar auglýsir hér með tillögu að Aðalskipulagi Langanesbyggðar 2007-2027 ásamt umhverfisskýrslu. Tillagan var áður auglýst þann 7. október 2010 en vegna grundvallarbreytinga er tillagan endurauglýst skv. 4. m.gr. 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br.
Tillagan, sem nær til alls sveitarfélagsins, er sett fram í:
- aðalskipulagsgreinargerð með umhverfisskýrslu
- þéttbýlisuppdrætti fyrir Þórshöfn í mælikvarða 1:10.000
- þéttbýlisuppdrætti fyrir Bakkafjörð í mælikvarða 1:10.000
- sveitarfélagsuppdrætti í mælikvarða 1:50.000
Grundvallarbreytingar felast fyrst og fremst í:
- afmörkun athafna-, hafnar- og iðnaðarsvæðis ásamt landbúnaðarsvæðis í Finnafirði
- afmörkun flugvallarsvæðis
- legu vegar yfir Brekknaheiði
- afmörkun þéttbýlisuppdráttar Þórshafnar
- ýmsar smærri breytingar voru einnig gerðar sem gert er grein fyrir í greinargerð.
Tillagan verður til sýnis á skrifstofum Langanesbyggðar, að Fjarðarvegi 3 á Þórshöfn og í anddyri Skólagötu 5 á Bakkafirði frá kl. 9.00 til 15.00 alla virka daga frá 14. maí 2012 til og með 25. júní 2012. Jafnframt verður tillagan til sýnis hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík.
Skriflegar athugasemdir og ábendingar skulu hafa borist sveitarstjóra Langanesbyggðar eigi síðar en kl. 16.00 mánudaginn 25. júní 2012.
Hægt verður að nálgast texta greinargerðarinnar, umhverfisskýrslu og uppdrætti aðalskipulagsins á heimasíðu Langanesbyggðar www.langanesbyggd.is frá og með 14. maí 2012.
Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkir tillögunni.
Sveitarstjóri Langanesbyggðar
Kennarar óskast
Langanesbyggð óskar eftir umsóknum í eftirtaldar stöður:
Grunnskólinn á Þórshöfn:
- Umsjónarkennari á miðstig
- Umsjónarkennari í námsver
- Stærðfræðikennari á unglingastigi
- Íþróttakennari
- Listgreinakennari
- Heimilisfræðikennari
Grunnskólinn á Bakkafirði
Auglýst er eftir tveimur kennurum í almenna kennslu
Við leitum að:
- Kennurum með B.ed. í kennslufræðum
- Metnaðarfullum og hugmyndaríkum einstaklingum
- Kennurum sem leggja áherslu á vellíðan og árangur nemenda
Nánari upplýsingar veita:
Arnfríður Aðalsteinsdóttir, skólastjóri Grunnskólans á Þórshöfn
S: 468-1164 og 899-3480 - skolastjori@thorshafnarskoli.is
María Guðmundsdóttir, skólastjóri Grunnskólans á Bakkafirði
S: 473-1618 og 847-6742 - maria@langanesbyggd.is
Umsóknarfrestur er til og með 1. júní.
Umsóknum þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðum umsóknar og rökstuðningum fyrir hæfni í viðkomandi starfi.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna kjörs forseta Íslands þann 30. júní 2012, við embætti sýslumannsins á Húsavík er hafin. Opið er á skrifstofutíma á milli kl. 9:30 – 15:00. Jafnframt verður opið laugardagana 2., 9., 16. og 23. júní frá kl. 12:00 – 14:00.Auk þess verður hægt að kjósa utankjörfundar á eftirtöldum stöðum:
- Skrifstofu Norðurþings á Kópaskeri, þriðjudaginn 19. júní kl. 9:30 - 10:30.
- Skrifstofu Norðurþings á Raufarhöfn, þriðjudaginn 19. júní kl. 12:00 - 13:00.
- Lögreglustöðinni á Þórshöfn, þriðjudaginn 19. júní kl. 15:00 - 16:00.
- Skrifstofu Skútustaðahrepps, miðvikudaginn 20. júní kl. 10:00 - 12:00.
- Skrifstofu Þingeyjarsveitar, miðvikudaginn 20. júní kl. 14:00 - 16:00
Auk þess verður hægt að kjósa utankjörfundar á lögreglustöðinni á Þórshöfn samkvæmt ákvörðun lögreglumanns á vakt.
Kjósendum er bent á nánari upplýsingar á vefslóðinni: http://www.kosning.is/
7. maí 2012
Sýslumaðurinn á Húsavík
Fleiri fréttir



